Fyrsta hvolpanámskeiðið í Hveragerði/Selfossi fer fram á Ingólfshvoli, reiðhöll og í Hveragerði
Kennt verður mánudags- og miðvikudagskvöld í 7 vikur.
Staðsetningar og tímar
Mánudagskvöldum verðum við í reiðhöllinni á Ingólfshvoli,
hóparnir verða tvískiptir, kl. 19-20 og 20-21
Á miðvikudögum eru allir saman kl. 17:30-19
og erum við þá ýmist með fyrirlestra (sem eru hundlausir) eða með útiæfingar.
Upphafsdagur: 17. september
Lokadagur: 29. október
Tímafjöldi: 13 skipti
Tilkynnt verður í staðfestingarpósti í hvorn mánudagstímann þið eigið að mæta
Mánudagar eru “skyldumæting” og líka fyrstu 3 miðvikudagarnir sem eru fyrirlestrar. Aðrir miðvikudagar eru æfingar til að hjálpa fólki að ná tökum á hverju verkefni fyrir sig og því mæting valkvæð en mæli ég með að nýta alla tíma.
17/09 mánudagur: kl . 19-20 Hópur I – kl. 20-21 Hópur II
19/09 miðvikudagur 17:30-19 fyrirlestur / hundlaust
24/09 mánudagur: kl . 19-20 Hópur I – kl. 20-21 Hópur II
26/09 miðvikudagur 17:30-19 fyrirlestur / hundlaust
01/10 mánudagur: kl . 19-20 Hópur I – kl. 20-21 Hópur II
03/10 miðvikudagur 17:30-19 fyrirlestur / hundlaust
08/10 mánudagur: kl . 19-20 Hópur I – kl. 20-21 Hópur II
10/10 miðvikudagur 17:30-19 Úti Æfing
15/10 mánudagur: kl . 19-20 Hópur I – kl. 20-21 Hópur II
17/10 miðvikudagur 17:30-19 Úti Æfing
22/10 mánudagur: kl . 19-20 Hópur I – kl. 20-21 Hópur II
24/10 miðvikudagur 17:30-19 Úti Æfing
29/10 mánudagur: kl . 19-20 Hópur I – kl. 20-21 Hópur II
Verkfærin sem þið þurfið að koma með
Nammi í poka, mjög smáa bita
1 leikfang sem hvolpurinn hefur gaman að t.d. bolta í bandi, kaðal eða álíka
Kúkapoka
Taum, lágmark 1,2 m helst amk 2m (ekki Flexi eða útdraganlega tauma)
Hálsól og/eða beisli
Góða skapið
Skilyrði fyrir skráningu
Hvolpar/hundar þurfa að vera bólusettir og ormahreinsaðir.
Um hvolpanámskeiðið
Hentar öllum hundategundum, stórum og smáum. Sniðið að hvolpum 10 vikna til 8 mánaða.
Notast er við jákvæðar styrkingar til að kalla fram æskilega hegðun.
Verð og greiðsluupplýsingar
Námskeiðið kostar 38.000 kr. fyrir hvern hund.
Greiða þarf fyrir föstudaginn 14/09 til að tryggja sér pláss, hægt er að velja að greiða með millifærslu eða kreditkorti (hafið samband ).
Greiða má inn á 0537-14-405643 kt. 610212-0850 En route ehf.
Skýring má gjarnan vera nafn hunds
kvittun óskast send á kristin@kristinsigmars.is
Styrkir / niðurgreiðslur
Stéttarfélög mörg hver veita styrki vegna námskeiða. Hægt er að fá kvittun vegna námskeiðsgjalds til að sækja um styrk.
Námskeiðið gefur afslátt af hundaleyfisgjöldum hjá sveitarfélögum. Sýna þarf 80% mætingu á námskeiðinu og hæfni í helstu skipunum í stuttu verkefni auk skriflegrar könnunar að loknu námskeiði til þess að fá viðurkenningu á útskrift.