Einkatímar fela almennt í sér heimsókn frá þjálfara á heimili hunds og handleiðslu við að þjálfa hundinn og fjölskyldumeðlimi í gegnum ákveðið verkefni.

Einkatímar henta til dæmis til að ákvarða:

  • Hvort hundurinn henti til ákveðinnar tegundar þjálfunar.
  • Til að þjálfa upp ákveðna hegðun hjá hundinum t.d. kenna honum ákveðið húsverk eða trix.
  • Ef hundurinn sýnir hegðunarvanda eða vandamál hefur skapast í samskiptum.

Val á hvolpi

Ef ætlunin er að fá hund á heimililð sem þjóna á ákveðnum tilgangi: vinnu, leit, veiði eða þjónusta þá getur skipt máli að reyna að finna rétta einstaklinginn úr gotinu. Ef þú vilt fá aðstoð við að velja rétta hundinn í verkefnið þá gæti verið að ég geti aðstoðað. Hafðu samband og leyf mér að heyra hvað þinn hundur á að verða þegar hann verður stór.

Almenn hundaþjálfun

Einkatímar eru góð lausn fyrir verðandi eða nýja hundaeigendur og hvolpaeigendur sem komast ef til vill ekki strax á námskeið t.d. vegna bólusetningar. Áhersla í slíkum tíma er almennt hvolpauppeldi, umhirða hunda og ábyrgð hundaeiganda gagnvart sveitarfélagi. Þá henta einkatímar líka hundaeigendum sem vilja kenna hundinum sínum ákveðin brögð en vantar smá aðstoð við að byrja og almenna handleiðslu.

Vandamálalausnir

Í heimsókninni er farið yfir hegðunarmynstur fjölskyldunnar, vandamálið sem komið er upp og helstu spurningum eigenda svarað. Þjálfarinn mun einnig fylgjast með hegðun hundsins meðan á heimsókn stendur og leggja fyrir ýmsar spurningar og jafnvel ráðleggingar út frá því sem hann sér.

Ef vandamálið sem leita á lausnar á gerist utan heimilis þá mun þjálfari mögulega stinga upp á að hittast við þær aðstæður eða reyna að framkalla sambærilegar aðstæður. Þá gætu eigendur einnig verið beðnir að taka upp myndband af hundinum og senda.

Eftir tímann setur þjálfari upp plan, æfingaplan eða plan til lausnar á vandamálinu og sendir síðan til eigenda.
Eftirfylgni með þjálfuninni og árangri næstu tvo mánuði er innifalin.

 

Flóknari/alvarlegri vandamál

Í alvarlegum tilfellum gæti lausnin verið tímafrekari og flóknari en hægt er að leysa með einni heimsókn og stuttu æfingaplani. Í slíku tilfelli ráðleggur þjálfari í framhaldi af fyrstu heimsókn viðeigandi meðferð. Við leitum lausna saman og hundurinn fær að njóta vafans.

[trx_sc_title title_style=”default” title_tag=”h4″ title_align=”left” title=”Verð” description=”

Verð veltur á staðsetningu, hvort hist er í hundaskólanum hjá mér eða hvort ég kem í heimahús.

Stakir tímar í Gæludýraklíníkinni Stórhöfða 17:

Einkaráðgjöf: 60-75 mín tími með skýrslu/ þjálfunarplani: kr. 15.000,- á Stórhöfða
Til viðmiðunar má segja að einkatími felist í heimsókn í ca 60-75 mín, skýrslu/þjálfunarplani, símtöl/skilaboð eins og þörf er á næstu 2 vikur.
Viðbótartími pr. klst 4.500 kr.
Ítarlegra/endurgerð á æfingaplani fyrir eigandann að vinna eftir: 15.000 kr.
Endurkomutímar: kr. 7.500,-

Einkatímar (60-75 mín): 7.500 kr skiptið
Klippikort 5 skipti: 33.000 kr  / 10 skipti: 64.000 kr (Viðbótar gjald vegna aksturs/hittast 2.000 kr/skipti)

Stakir tímar, heimsókn í heimahús:

Einkaráðgjöf: 60-75 mín tími með skýrslu/ þjálfunarplani: kr. 18.000,-
Til viðmiðunar má segja að einkatími felist í heimsókn í ca 60-75 mín, skýrslu/þjálfunarplani, símtöl/skilaboð eins og þörf er á næstu 2 vikur.
Viðbótartími pr. klst 4.500 kr.
Ítarlegra/endurgerð á æfingaplani fyrir eigandann að vinna eftir: 15.000 kr.

Einkatímar (60-90 mín): 10.500 kr skiptið
Klippikort 5 skipti: 47.000 kr  /  10 skipti: 89.000 kr

Klippikort gilda í 8 mánuði

 

 

 

 

© Kristín Sigmarsdóttir