Hentar öllum hundategundum, stórum og smáum. Sniðið að hvolpum 10 vikna til 8-12 mánaða.
Síðustu námskeið í Rvk á árinu 2021 hefjast 9. nóv.
Dagskrá 2022 verður birt í nóvember.
Um námskeiðið:
Notast er við jákvæðar styrkingar til að kalla fram æskilega hegðun.
Námskeiðið er 10 skipti: 1,5 klst hvert skipti, samtals 20 kennslustundir. Námskeiðið fer fram innandyra en amk. 1 kennslustund er notuð í að fara út og æfa i raunaðstæðum. Í lok hverrar kennslustundar er lögð fyrir heimavinna.
Hádegistímar eru þó 13 skipti og eru tímarnir ýmist 1 klst eða 1,5 klst.
Árangursríkar aðferðir kenndar við að kenna hvolpum góða siði líkt og:
- komdu / innkall og hvernig á að ná sambandi við hundinn sinn
- stýrum athyglinni
- sestu og sitja kyrr
- leggstu og liggja kyrr
- þægileg taumganga og notkun taums sem öryggistækis
- bíddu og fjallað um neyðarstopp
- leita og mikilvægi þess að þjálfa nefið
- sækja og skila og tengingar þess við innkallsæfingar og orkulosun
- bælið og griðarstaður hundsins
Fyrirlestrar eru 4 á námskeiðinu, hundlausir, hver fyrirlestur er 90 mín. Þá eru einnig stuttir örfyrirlestrar í hverjum tíma, ca 10-15 mín.
Farið er m.a. yfir eftirfarandi atriði:
- Reglugerðir um hundahald : Hveragerði og Ölfus, Reykjavík eða í því sveitarfélagi sem námskeiðið er haldið/þáttakendur eru frá
- Umhirða felds, húðar, nagla, eyrna og tanna. Fóðrun og annað sem snýr að velferð dýrsins.
- Merkjamál hunda, hvernig hundar tjá sig. Hvenær hundi líður illa, hvenær hann gæti bitið. Hvernig lesa skal vanlíðan og hvernig bregðast skal við.
- Þroskaskeið hunda. Hvernig hundar læra og hvenær við erum með athyglina þeirra til þess að geta kennt þeim. Hvernig umhverfið mótar þá og hvernig við getum stýrt umhverfinu okkur í hag.
- Hvað er stress og hvenær er það að hjálpa okkur/vinna á móti okkur. Ólíkar hundategundir skoðaðar og bornar saman.
- Hvernig má lágmarka stressi í hundum
- Árangursríkar hundaþjálfunaraðferðir ræddar og útskýrðar.
- Ábyrgð hundaeigandans gagnvart dýrinu og almennt um dýravelferð.
- Fjölskylduumhverfið: Börn og hundar, hunda og gamalt fólk og griðarstaður hunda á heimilinu
- Að kynnast ókunnugum hundi, að hitta aðra hunda og læra að umgangast þá
- Hvers vegna hvolpar þurfa að læra að dreifa huganum og ná ró í ókunnum aðstæðum
- Dýralæknir, gestafyrirlestur: algengustu vandamál tengd hundahaldi, hiti, bólusetningar, örmerki ofl. áhugavert.
Námskeiðið gefur afslátt af hundaleyfisgjöldum
Þátttakendur þurfa að hafa meðferðis:
Nammi í poka, mjög smáa bita
1 leikfang sem hvolpurinn hefur gaman að t.d. bolta í bandi, kaðal eða álíka
Kúkapoka
Taum, lágmark 1,2 m helst amk 2m
Hálsól og/eða beisli
Bókun á námskeið og greiðsla námskeiðsgjalds
Verð á námskeið 48.500 kr fyrir hund, hverjum hundi mega fylgja 2 þátttakendur.
Hvolpar/hundar þurfa að vera bólusettir (amk. búnir með 2 af 3 sprautum) og ormahreinsaðir.
Námskeiðsgjald óskast greitt strax við skráningu.
Sé meira en 4 vikur í námskeið telst skráning staðfest með skráningargjaldi sem er 50% af námskeiðsgjaldinu. Staðfestingargjald er óendurkræft. Uppgjör á námskeiðsgjaldinu skal fara fram í síðasta lagi í fyrsta tíma námskeiðs.
Öll námskeið hér að ofan eru einnig í boði sem einkanámskeið en ákveðnum hluta námskeiðanna er eðli málsins samkvæmt ekki hægt að ljúka nema í hóptíma með öðrum hundum. Verð á einkanámskeiði fer eftir námskeiði og hundi.